Skip to content

vefforritun/vef2-2021

Repository files navigation

Vefforritun 2, 2021

Hér má nálgast alla fyrirlestra, dæmi og verkefni í áfangagnum vefforritun 2 kenndan við HÍ vorið 2021.

Kennsluáætlun

Vika Fimmtudagur Viðfangsefni Verkefni Skil
1 14. janúar Kynning, node.js Verkefni #1
2 21. janúar Einingar, express, HTTP
3 28. janúar Form, postgres, Heroku Verkefni #2 Verkefni #1
4 4. febrúar Öryggi, vefþjónustur Hópverkefni #1
5 11. febrúar Auðkenning, vefþjónustur Verkefni #3 Verkefni #2
18. febrúar Fyrirlestur féll niður
6 25. febrúar redis & cache, straumar & WS Verkefni #4 Verkefni #3
7 4. mars Framenda framework, react
8 11. mars React Verkefni #5 Verkefni #4
9 18. mars TypeScript, next.js Hópverkefni #1
25. mars Fyrirlestur féll niður Verkefni #5
1. apríl Páskafrí
10 8. apríl React context, testing, GraphQL Verkefni #6
11 15. apríl Upprifjun og um lokapróf
22. apríl Sumardagurinn fyrsti Verkefni #6

Fyrirlestrar

Hver fyrirlestur samanstendur af fyrirlestri sem er haldinn, hlekk á upptöku á hann og lista af dæmum sem fylgja. Vísað er í dæmin innan fyrirlestra en reynt er að hafa þau einnig sjálfskjalandi, þ.e.a.s. hægt er að skoða þau og (vonandi) skilja án samhengis fyrirlesturs.

Aukaefni er tiltekið sem efni sem skal skoða, setja upp eða prófa meðfram eða eftir fyrirlestra. Gert er ráð fyrir að farið sé yfir það í verkefnum.

„Verkefni vikunnar“ inniheldur tillögu að verkefnum sem hægt er að vinna í framhaldi af fyrirlestri og fram að næsta. Sérstök dæmi, hugtök, eða forrit sem ætti að setja upp. Einnig tenging fyrirlestra við þau verkefni sem eru í gangi.

Ítarefni er efni sem ekki er gerð krafa um að sé farið yfir en mun veita dýpri skilning á námsefninu og kynna efni sem er utan námsefnis en tengist vefforritun.

Verkefni

Hópverkefni

Lokapróf

Miðvikudaginn 28 apr. 2021 kl. 13:30 - 16:30. Inspera heimapróf (ólæst).

Sjá nánar í fyrirlestri 11.3.

Nánari upplýsingar kennsluáætlunar

Nánari upplýsingar kennsluáætlunar svo sem námskeiðslýsing, fyrirkomulag fyrirlestra, dæmatíma, verkefna, mætingar, prófa og námsmat kemur fram í fyrirlestrinum 1.1 - Kynning